Persónuverndarstefna

Ábyrgðaraðili

Imanov LTD er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem safnast á byaurel.com. Sjá lagalegan fyrirvara fyrir fyrirtækjaupplýsingar og samskiptaupplýsingar.

Hvaða upplýsingum við söfnum

Þegar þú leggur inn pöntun: nafn, heimilisfang, tölvupóstur, símanúmer og greiðsluupplýsingar (greiðsluupplýsingar fara beint til greiðsluþjónustu og eru ekki geymdar hjá okkur).

Þegar þú skráir þig á póstlista: tölvupóstfang.

Þegar þú heimsækir vefsíðuna: IP-tala, tegund vafra og tækis, hvaða síður þú skoðar og hvaðan þú komst. Þssu er safnað með vafrakökum.

Af hverju við notum upplýsingarnar

  • Til að afgreriða og senda pöntunina þína (grundvöllur: framkvæmd samnings)
  • Til að hafa samband við þig um pöntunina (framkvæmd samnings)
  • Til að senda þér markpóst, ef þú hefur samþykkt það (samþykki — þú getur afturkallað hvenær sem er)
  • Til að bæta vefsíðuna og mæla árangur markaðssetningar (lögmætir hagsmunir eða samþykki)
  • Til að uppfylla bókhalds- og skattaskyldur (lagaskylda)

Hverjir fá upplýsingarnar

Við deilum upplýsingum aðeins með þeim sem þarf til að reka verslunina:

  • Shopify — vefverslunar- og greiðslukerfi
  • Sendingarfyrirtæki og Íslandspóstur — til afhendingar
  • Greiðsluþjónustur — til að vinna greiðslur
  • Tölvupóstþjónusta — til að senda staðfestingar og fréttabréf

Við seljum ekki persónuupplýsingar þínar.

Flutningur út fyrir EES

Imanov LTD er skráð í Bretlandi og hluti af þjónustuveitendum okkar er utan EES. Slíkur flutningur byggist á ákvörðun um fullnægjandi vernd eða á stöðluðum samningsskilmálum sem Evrópusambandið hefur samþykkt.

Hversu lengi við geymum upplýsingar

Pöntunarupplýsingar eru geymdar í 7 ár vegna bókhaldsskyldu. Póstlistaskráning er geymd þar til þú afskráir þig.

Réttindi þín

Þú hefur rétt á að:

  • fá afrit af þeim upplýsingum sem við höfum um þig
  • fá réttar upplýsingar leiðréttar
  • fá upplýsingum eytt
  • takmarka eða andmæla vinnslu
  • flytja upplýsingar þínar
  • afturkalla samþykki hvenær sem er

Sendu fyrirspurn á aurel@byaurel.com. Ef þú ert ósátt(ur) við hvernig við meðhöndlum upplýsingar þínar getur þú lagt fram kæru hjá Persónuvernd (personuvernd.is).

Vafrakökur

Við notum vafrakökur til að láta vefverslunina virka, muna innihald körfunnar og mæla notkun. Þú getur eytt eða blokkað vafrakökum í vafranum þínum, en þá getur verið að hluti vefsíðunnar virki ekki rétt.